Brúðkaupsathöfnin verður haldin þann 13. ágúst kl. 16 á Melgraseyri við Ísafjarðardjúp. Þar er sveitabær sem systir og mágur brúðarinnar eiga með vinum sínum. Athöfnin verður létt og laggóð og svo verður boðið upp á fordrykkinn ‘Eldblóma Elexír’. Veislan er haldin í hlöðu og þar er sitjandi borðhald þar sem boðið verður upp á chili con carne og chili sin carne ásamt meðlæti. Í eftirrétt verður hjónabandssæla og að sjálfsögðu verður nóg af fljótandi veigum bæði áfengar og óáfengar. Við sláum svo upp almennilegu hlöðuballi og er líða tekur á nóttina tendrum við bál í fjörunni.
Þessi mynd hér að neðan er fyrsta myndin sem til er af okkur. Þetta er brúðarmynd en við þekktumst ekki vitund þegar myndin var tekin. Við lékum hjón í skólaleikriti.